Fara í efni
Kjarnagluggar — íslensk framleiðsla síðan 1988

Um okkur

Vönduð smíði síðan 1988

Við hjá Kjarnagluggum vöndum til verka og förum eftir ströngustu kröfum framleiðanda efnisins hvað varðar samsetningu og aðra meðhöndlun.

  1. 1988

    Kjarnagluggar ehf. stofnað

    Fyrirtækið hefur síðan sérhæft sig í smíði glugga, hurða og milliveggja úr plasti (PVC-U).

  2. 1995

    Eingöngu REHAU

    Frá 1995 hefur framleiðslan eingöngu verið úr efnum frá REHAU í Þýskalandi.

  3. Í dag

    Roðamói 9, Mosfellsbæ

    Gluggar, hurðir, sólstofur, svalalokanir og milliveggir smíðaðir eftir máli.

Hvítar PVC útidyr og gluggar á húsi með viðarklæðningu

01

REHAU

REHAU hefur framleitt PVC-efni í glugga og hurðir í áratugi og staðið í mikilli vöruþróun á því sviði. REHAU er eitt stærsta fyrirtæki Evrópu í framleiðslu plastefna og leiðandi á sínu sviði.

Framleiðsla REHAU uppfyllir ströngustu gæðakröfur og er undir ISO 9001 gæðastaðli.

02

Íslensk framleiðsla

Allir gluggar og hurðir eru smíðaðir hjá okkur eftir máli. Marghólfa PVC-U prófíll og 28 mm þykkt gler skila einangrun sem er betri en almennt þekkist — eiginleiki sem skiptir máli í íslensku veðurfari.

03

Ráðgjöf og ísetning

Söluráðgjafar okkar aðstoða við val á lausnum. Við sjáum ekki sjálf um ísetningar en gefum góð ráð um ísetningu og efnisval og getum bent á smiði sé þess óskað.

Segðu okkur frá verkefninu

Við smíðum eftir máli og teikningum. Sendu okkur upplýsingar og við höfum samband með tilboð.

Eða hringdu í 512-3456